Stjórnendaráðgjöf
Hvert stefnir fyrirtækið þitt?
Er fyrirtækið þitt búið að vaxa umfram innri getu til að taka við þeim vexti? Á hvaða leið er fyrirtækið? Hvaða innviði þarf að styrkja? Hvaða ferla þarf að laga? Hvaða hæfni eða þekkingu vantar inn í starfsmannahópinn? Hvar liggja tækifærin? Þegar stjórnendur standa frammi fyrir svona spurningum er gott að staldra við og rýna inn á við.
Éxito veitir ráðgjöf sem stuðlar að skýrari ferlum, markvissari samskiptum og réttri skipan starfsfólks og þróun þeirra. Éxito vinnur með stjórnendum í að teikna upp starfsemina, greina tækifærin og móta áætlun sem samræmist markmiðum fyrirtækissins.
Við komum tímabundið inn í verkefni með fyrirtækjum bæði með ráðgjöf og vinnu að þeim verkefnum sem þarf að vinna eins og:
- Stuðningur við stjórnendur
- Stefnumótun
- Verklagsreglugerð tengdri Svansvottun
- NPS ánægjumælingar fyrir viðskiptavini