Markþjálfun – Upplýsingaform

Markþjálfun

Hér bókar þú tíma í markþjálfun

Á netinu og í eigin persónu

Markþjálfun er jafn árangursrík þegar hún er framkvæmd á netinu eins og í eigin persónu.

Tímarnir sem eru í boði eru:

  • Á netinu (í gegnum Zoom eða Teams)
  • Ármúla 23, 108 Rvk

Ef þú vilt bóka tíma skaltu fylla út eyðublaðið sem þú finnur hér að neðan.

Markþjálfunartímar

Hvert skipti er ein klst og kostar klukkutíminn 20.000,- með VSK ef haldið á netinu en 25.000,- með VSK ef tíminn fer fram í Ármúla 23.

Allt um þig

Hvað viltu vinna með?

Eftirfarandi atriði skipta máli í undirbúningi á okkar samstarfi til að aðstoða mig við að skilja þig og þínar þarfir.  Skrifaðu það sem þú telur að sé mikilvægt og vit í fyrir þig, aðlagaðu eða láttu eiga sig að svara ef þér finnst það ekki skipta máli fyrir þig. 

Hvaða fólk er mikilvægt í þínu lífi og hver eru samskiptin við þau ?

Meira um þig

Upplýsingar um markþjálfun – vinsamlegast lesið

Upplýsingar um markþjálfunartíma

Tímarnir eru í boði á netinu og í eigin persónu (Ármúla 23, 108 Reykjavík).

 

Markþjálfun á netinu

Markþjálfunartímar eru í boði í gegnum Zoom, Teams og síma.

Með fyrirvara um framboð er hægt að panta tíma mánudaga til föstudaga frá 9:00 til 15:00.

Fyrir tíma á netinu er viðskiptavinur ábyrgur fyrir því að hafa nægjanlegt internet til að leyfa bæði mynd og hljóð.

Símatími er aðeins í boði eftir fyrsta tíma. Ef síminn eða nettengingin rofnar mun markþjálfinn reyna að tengjast aftur. Ef það gengur ekki er viðskiptavinurinn beðinn um að reyna að tengjast aftur. Viðskiptavinurinn ber ábyrgð á að útvega aðra leið til að hafa samband, t.d. síma fyrir markþjálfun á netinu.

 

Tímabókanir

Vinsamlegast mættu tímanlega. Ef þú sérð fram á að verða sein/n í tíma skaltu hringja í síma 776 1220 eða senda tölvupóst á exito@exito.is. Ef þú mætir of seint munum við nýta það sem eftir er af tímanum þar sem það er mögulegt. Ef þú þarft að fresta tíma eða hætta við tíma, vinsamlegast láttu vita með að lágmarki 24 klukkustunda fyrirvara (48 klukkustundir fyrir mánudagstíma), annars á við 50% forfallagjald af tíma. Ef þú mætir ekki í tíma og hefur ekki afpantað eða frestað þá gildir fullt gjald.

 

Markþjálfunartími – lengd og gjöld

Hefðbundnir markþjálfunartímar er ein klukkustund.

Gjaldið fyrir markþjálfun á netinu er 20.000,- á klukkustund.  Markþjálfun þar sem við hittumst í Ármúla 23 kosta 25.000,- á klukkustund. Verð er með virðisauka.

 

Greiðsla gjalds

Ég mun senda þér kröfu í bankann þinn sem þarf að greiða 2 dögum fyrir bókaðan tíma.

Hér að neðan þarftu að gefa upp kennitölu og bankaupplýsingar til að bókunin sé gild.

 

Upplýsingagjöf

Vinsamlegast gefðu hér eins heiðarlegar og ítarlegar upplýsingar og mögulegt er til að sem bestur árangur náist af okkar vinnu. Þegar við hittumst í fyrsta tíma og eins síðar í ferlinu skiptir einnig miklu máli að allar upplýsingar sem þú gefur séu eins heiðarlegar og unnt er.

 

Heimavinna

Mögulega verða lögð fyrir verkefni eða heimaverkefni sem hluti af ferlinu og verða þau samþykkt á meðan á fundi stendur.

 

Spurningar eða fyrirspurnir

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi heimanámið eða aðra þætti markþjálfunar, vinsamlega hafið samband við Guðbjörgu í síma 776 1220 eða exito@exito.is

Markþjálfasamningur – vinsamlegast lesið

Vinsamlegast lestu samninginn og ef þú samþykkir, fylltu þá út síðasta hlutann þar sem beðið er um nafn þitt og dagsetningu.

 

Samningur um markþjálfun

Markþjálfun er samstarfsverkefni markþjálfa (Guðbjargar Erlendsdóttur) og marksækja (þú sjálf/ur) sem byggir á samkomulagi um eftirfarandi atriði:

 

  • Ég geri mér grein fyrir því að eðli markþjálfunar verður útskýrt fyrir mér og að ég get haldið áfram þegar ég hef fullnægjandi upplýsingar.
  • Ég skil að markþjálfun er samvinnuferli milli markþjálfa og marksækja og að báðir aðilar hafa hlutverk og þurfa að taka þátt.
  • Ég skil að þegar ég skuldbindi mig til verkefna og athafna, umfram markþjálfunartíma, eru þau hönnuð til að styðja og efla ferlið.
  • Ég geri mér grein fyrir því að lengd hvers tíma getur verið mismunandi, frekar en að vera tilteknar 60 mínútur. Ég geri mér einnig grein fyrir því að sú vinna sem á að fara í vinnuna getur tekið fleiri en eitt skipti.
  • Ég skil að ég verði beðin/n um að ræða ákveðið markmið/stefnu fyrir ferlið.
  • Ég skil að trygging fyrir árangursríkri niðurstöðu er ekki möguleg og samþykki að jafnvel þar sem markþjálfi vinnur eftir bestu getu, gæti tiltekinn árangur ekki náðst vegna aðstæðna sem markþjálfi hefur ekki stjórn á.
  • Ég veit af því gjaldi sem tekið er fyrir markþjálfun og samþykki að greiða það á þann hátt sem samið var um áður en markþjálfun hefst.
  • Ég hef birt allar upplýsingar sem gætu haft áhrif á árangur markþjálfunar eða líðan mína.
  • Ég geri mér grein fyrir því að markþjálfi er ekki ábyrgur fyrir líkamlegri eða andlegri líðan minni.
  • Ég gef samþykki mitt fyrir því að þessi markþjálfun fari fram hjá markþjálfa.
  • Ég viðurkenni og samþykki að persónuupplýsingar verða skráðar í markþjálfunar-, bókhalds- og samskiptatilgangi og þessar upplýsingar eru varðveittar á öruggan hátt í samræmi við almennar persónuverndarreglur (GDPR).

Ég geri mér grein fyrir því að markþjálfinn samþykkir að rækja skyldur sínar með tilskildum stöðlum um siðareglur og starfshætti og að vera bundin af lögum faghóps hennar.

Ég (marksæki) veiti samþykki mitt fyrir þessari markþjálfun og tek ábyrgð á núverandi- og framtíðaraðstæðum, bæði líkamlegum og andlegum.

 

Reiningsupplýsingar

Hér þarf að gefa upp kennitölu og bankaupplýsingar til að bókunin sé gild og verður send krafa í bankann þinn sem þarf að greiða 2 dögum fyrir bókaðan tíma.

Markþjálfunar samþykki

Til að samþykkja markþjálfunarsamninginn skaltu fylla út eftirfarandi upplýsingar:

Skráðu þig á póstlistann fyrir áhugaverðar fréttir og tilboð